Færsluflokkur: Bloggar
Bloggar | 16.6.2008 | 09:40 (breytt kl. 09:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1. ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM Já ömmu minni
2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? Man það ekki
3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? já mjög vel að sögn annara
4. HVAÐA KJÖT FINNST ÞÉR BEST? Íslenskt Lambakjöt
5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? Já fjögur stykki
6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? Já
7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? það er ekki oft en kemur fyrir
8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? Aldrei
9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Hafragrautur
10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? Já yfirleitt
11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? Já og ? Fer eftir atvikum
12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Ís með strussel
13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ? Framkoma, persónuleiki.
14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ? Rauðbleikur
15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? Ef ég geri eitthvað sem er ekki rétt.
16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? Þeim sem hafa hvatt okkur hinstu kveðju.
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ? Já, allir sem lesa þetta EIGA að svara þessum lista
18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? Gallabuxum og svörtum Groggs
19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ? Normalbrauð m/ mysing
20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ? Morgunúvarpið rás 2
21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? Vínrauður
22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? Hreintt loft
23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? Boggu dóttur mína
24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR, Já besta vinkona mín
5. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? Skautalist og frjálsar
26. ÞINN HÁRALITUR ? Grásprengdur
27. AUGNLITUR ÞINN ? Blár
28. NOTARÐU LINSLUR ? Nei
29. UPPÁHALDSMATUR ? Ýsa, skata sígin fiskur, gellur og flr
30. HVORT LÍKAR ÞÉR BETUR, HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Horfi aldrei á hrylling, Góður endir er alltaf það besta
31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? Það eru svo mörg ár, man það ekki
32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? Man ekki svo langt afturí tímann 39 ár.
33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Fromas
34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ? Rósa
35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? Óskar
36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? Glerlistasköpun og litafræði
37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? Engin motta
38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? Jane Eyer
39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ? Stones.
40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? Sevilla
41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? Aðrir verða að svara því
42. HVAR FÆDDISTU ? Kæru Reykavík
43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ? Hverjum sem er
Bloggar | 16.6.2008 | 09:23 (breytt 17.6.2008 kl. 17:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 24.3.2007 | 16:27 (breytt kl. 16:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er án efa allt á fullu í undirbúningi hjá foreldrum um land allt fyrir Fermingar barna sinna. Ég er ein af þeim sem tek þátt í því vegna barnabarna minna og það er mikið og margt sem þarf að hugsa um og framkvæma fyrir Fermingardaginn. Mér finnst nú á dögum allt of mikið stress og læti í sambandi við að halda eina veislu, ég tala nú ekki um peningaútlátið og líka hvað allt hefur hækkað og er dýrt í dag, sama hvað það er. Auðvitað fá öll börn fermingarföt, áletraða sálmabók, skreytt fermingarkerti, að ógleymdri fermingatertunni, stúlkur fara í hárgreiðslu og snyrtingu, svo er það myndataka, þá veislusalur ef þess þarf og veisluföngin, ýmist kaffiboð eða matarboð. Það er eitt enn og virðist vera nú til dags aðalmálið og það eru borð og blómaskreytingar í veislunni. Jú,vissulega er þetta allt mjög fágað og fallegt en kostnaðurinn hlýtur að vera ansi mikill fyrir eina veislu hjá fermingarbarni. Ég gerði það að gamni mínu að fara á stúfana og skoðaði margt í sambandi við þetta allt saman og þá varð mér ljóst að veislur af þessu tagi geta kostað þegar er allt er talið ( fer eftir fjölda gesta) frá 120 þúsund og allt upp í 400 þúsund. Ég held að þetta sé komið eiginlega út í öfgar hjá sumum, það er eins og það sé oft um kapphlaup að ræða hver hefur fínustu veisluna og flesta gestina, ég hef heyrt um alt að 200 manna fermingaveislu og hverjir eru það sem láta verst, auðvitað foreldrarnir. En það má ekki gleymast að það eru alltof mörg börn sem líka fermast þar sem fátækt ríkir og litlir sem engvir peningar til en eru samt ánægð og gera sér það að góðu sem þeim er fært. Það mætti staldra svolítið við og hugsa um út á hvað fermingin gengur, jú börnin boða komu sína til guðs og játast honum inn í kristna trú og eins og Jesús sagði, leyfið börnunum að koma til mín, þar er tekið jafnt á móti öllum börnum með opnum örmum. En því miður, svona er Ísland í dag.
Bloggar | 23.3.2007 | 13:10 (breytt kl. 13:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með síðustu verkum Alþingis um helgina var að breyta lögum sem gera það að verkum að sala á VÆNDI er ekki lengur refsiverð á Íslandi svo lengi sem það er ekki stundað til framfærslu og hinsvegar er ekki refsivert að kaupa vændi. Það er bannað að vera melludólgur en samt má stunda vændi með óbeinum hætti. Það er eitthvað mikið að hér þegar menn greiða athvæði sitt í svona starfsemi, þvílík siðblinda. Á meðan berjast mörg lönd á móti mannsali ég tala nú ekki um kynlífsþrælkun á börnum og unglingum út um allan heim, er ekki verið að bjóða hættunni heim með þessum breytingum á lögum hér á Ísland. Hvað halda menn að þetta eigi eftir að hafa í för með sér? Það má líka minna á allt barnaklámið sem flæðir út um allt, ekkert virðist vera hægt að gera til að sporna við þeim viðbjóði, og einnig baráttuna við að ná til barnaníðinga og þeirra sem lifa af því að framleiða klám. Ætla þeir aðilar sem greiddu athvæði með vændi á Íslandi að taka á sig alla ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis eða öðruvísi en ætlað var með breytingu á þessum lögum. Þvílíkir Bananar
Bloggar | 20.3.2007 | 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 15.3.2007 | 13:18 (breytt 23.3.2007 kl. 13:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 19.2.2007 | 16:13 (breytt 23.3.2007 kl. 13:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 18.2.2007 | 17:48 (breytt 23.3.2007 kl. 13:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alltaf sama sagan, ég sem var að vona að það kæmi ekkert svona hret og frost fyrr en um Páska. Ekki er hægt að deila við veðurguðina svo maður verður bara að taka því sem koma skal. Í dag er mjög fallegt veðrið, hvít sleikja yfir öllu og Esjan skartar sýnu fegursta í heiðskírri sólinni. Við rúntuðum í Sandgerði, komum við hjá Írisi og CO, sáum flugvélarnar taka upp og lenda hver af annari og það finnst mér alltaf svo gaman og flott að sjá, það er sennilega af því að fyrir það fyrsta fæddist ég við enda flugbrautar þar sem Hótel Loftleiðir stendur, svo þegar að við bjuggum í Njarðvík þá var húsið staðsett í fluglínu eins og ég kallaði það því suð-vestur og norð-austur brautin var í þeirri línu og maður gat hérumbil talið skrúfurnar í vængjum DC áttana þegar að þær voru í lendingu.
Bloggar | 4.2.2007 | 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar